Skyggni - opin barnapeysa
Skyggni - opin barnapeysa
Skyggni opin barnapeysa er dásamleg peysa á öll litlu börnin okkar. Peysan er hönnuð með það í huga að vera þröng en teygjanleg. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring.
Stærðir: 0-3mán (3-6mán) 6-9mán (9-12mán) 12-18mán (18-24mán) 2-3ára
Ummál: 42cm (45cm) 48cm (50cm) 52cm (55cm) 58cm
Lengd: 26cm (28cm) 30cm (32cm) 34cm (35,5cm) 39cm
Prjónfesta: 28 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 3mm
Prjónar: 3mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm og 3mm sokkaprjónar fyrir ermar
Tillaga að garni: IceWear Nordic Mini eða Knitting for Olive merino 100gr (100gr) 100gr (100gr) 150gr (150gr) 150gr
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi.
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits