Myrkvi - peysa
Myrkvi - peysa
Myrkvi barnapeysa er hlý og góð peysa fyrir börnin.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með fallegu munstri á berustykkinu.
Stærðir: 3-6mán (6-9mán) 9-12mán (1-2ára) 2-3ára (3-4ára) 5-6ára
Ummál: 51cm (53cm) 54,5cm (62,5cm) 63,5cm (65,5cm) 72cm
Lengd: 28cm (32cm) 33cm (36cm) 39cm (42cm) 44cm
Prjónfesta: 22 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4
Prjónar: 3,5mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm, 4mm hringprjónar 40, 60 og/eða 80cm og sokkaprjónar nr 3,5mm og 4mm fyrir ermar og kaðlaprjónn fyrir munstrið á berustykkinu
Tillaga að garni: Jord Woolly 150gr (200gr) 200gr (200gr) 250gr (250gr) 300gr (50gr = 125m)
eða
Dale Merino 22 150gr (200gr) 200gr (200gr) 250gr (250gr) 300gr (50gr = 120m)
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits