Mugga - barnapeysa
Mugga - barnapeysa
Mugga barnapeysa er fullkomin peysa á litlu krílin með fallegu munstri niður mitt framstykkið. Peysan er hönnuð með það í huga að hafa smá slaka og ætti því að vera nokkuð víð. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, berustykkið er prjónað fram og til baka en bolurinn í hring. Ermar eru einnig prjónaðar í hring.
Stærðir: 3-6mán (6-9mán) 9-12mán (1-2ára) 2-3ára
Ummál: 51,5cm (54,5cm) 57,5cm (60,5cm) 65,5cm
Lengd: 30cm (32cm) 34cm (35cm) 37cm
Prjónfesta: 20 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4mm
Tillaga að garni: Double Sunday frá Sandnes 150gr (150gr) 200gr (200gr) 250gr
Tölur: Veljið 2-3 fallegar tölur til að hafa á berustykkinu
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi.
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits