Ljómi - sett
Ljómi - sett
Ljómi sett er æðislegt sett í vagninn eða leikskólann.
Peysan er hönnuð með það í huga að hafa ágætlega mikinn slaka og ætti þess vegna að vera örlítið víð. Hún er prjónuð ofan frá og niður, í hring.
Buxurnar eru hannaðar með það í huga að vera örlítið víðar. Þær eru prjónaðar ofan frá og niður, í hring.
Einnig er hægt að kaupa þessar uppskriftir stakar.
Stærðir: 0-3mán (3-6mán) 6-9mán (9-12mán) 1-2ára (2-3ára) 3-4ára (5-6ára)
Ummál á peysu: 52cm (56cm) 60cm (64cm) 66cm (72cm) 76cm (80cm)
Lengd á peysu: 26cm (28cm) 29cm (32cm) 36cm (38cm) 41cm (44cm)
Ummál á buxum: 46cm (48cm) 50cm (52cm) 54cm (56cm) 58cm (60cm)
Lengd á skálmum: 17cm (22cm) 23cm (24cm) 28cm (31cm) 34cm (39cm)
Prjónfesta: 20 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4mm
Prjónar: Hringprjónar nr 3,5mm OG 4mm í 40cm og/eða 60cm og sokkaprjónar nr 3,5mm og 4mm fyrir skálmar
Tillaga að teygju: Þunnur teygjuþráður til að þræða í hálsmál peysunnar
Tillaga að garni: Double Sunday 250gr (250gr) 300gr (300gr) 350gr (400gr) 450gr (500gr)
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits