Ljómi - peysa
Ljómi - peysa
Ljómi barnapeysa er æðisleg og hlý peysa í vagninn eða leikskólann.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með fallegu munstri á framstykkinu. Ermar eru prjónaðar í hring með munstrinu neðst á ermunum.
Stærðir: 0-3mán (3-6mán), 6-9mán (9-12mán) 1-2ára (2-3ára) 3-4ára (5-6ára)
Ummál: 52cm (56cm) 60cm (64cm) 66cm (72cm) 76cm (80cm)
Lengd: 26cm (28cm) 29cm (32cm) 36cm (38cm) 41cm (44cm)
Prjónfesta: 20 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4mm
Prjónar: 3,5mm OG 4mm hringprjónar 40cm, 60cm og/eða 80cm og sokkaprjónar nr 3,5mm og 4mm fyrir ermar
Tillaga að garni: Double Sunday Sandnes 150gr (150gr) 150gr (200gr) 200gr (250gr) 250gr (300gr)
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits