Ljómi - buxur
Ljómi - buxur
Ljómi buxur eru hlýjar og góðar buxur í vagninn eða leikskólann.
Buxurnar eru hannaðar með það í huga að vera örlítið víðar. Þær eru prjónaðar ofan frá og niður, í hring.
Stærðir: 0-3mán (3-6mán) 6-9mán (9-12mán) 1-2ára (2-3ára) 3-4ára (5-6ára)
Ummál: 46cm (48cm) 50cm (52cm) 54cm (56cm) 58cm (60cm)
Lengd á skálmum: 17cm (22cm) 23cm (24cm) 28cm (31cm) 34cm (39cm)
Prjónfesta: 20 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4mm
Prjónar: Hringprjónar nr 3,5mm OG 4mm í 40cm og/eða 60cm og sokkaprjónar nr 3,5mm og 4mm fyrir skálmar
Tillaga að garni: Double Sunday 100gr (100gr) 150gr (150gr) 200gr (200gr) 250gr (250gr)
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits