Gígja - ungbarnakjóll
Gígja - ungbarnakjóll
Kjóllinn er prjónaður ofan frá og niður, fyrst fram og til baka og síðan tengdur í hring. Hann er opin í bakið með i-cord hálsmáli og i-cord snúru í mittið. Síðast en ekki síst er hann með i- cord affellingu á ermum og fallegt munstuð að neðan sem er einkennandi fyrir Gígju línuna.
Stærðir: 0-3 mán, 3-6 mán, 6-9 mán, 9-12 mán og 1-2 ára
Ummál (mælt undir höndum) : 45cm, 47,5cm, 51cm, 55cm, 58cm
Prjónar: Hringprjónn nr. 3 (40 og 60cm) Sokkaprjónar nr. 3
Prjónfesta: 28 L = 10 cm
Garn: Wolly light frá jord clothing, Merino frá knitting for olive eða Sunday frá sandnes
Magn af garni: 150, 150gr, 150gr, 150gr, 200gr
*magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll mis fast/laust
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Ásgerður Hlín Þrastardóttir
Netfang: knittingforaria@gmail.com
Instagram: @knittingforaria