Flosi - kjusa
Flosi - kjusa
Flosa kjusan er þriðja uppskriftin í Flosa línunni og er hluti af ungbarnasetti.
Hún er prjónuð frá andliti að hnakka, fyrst fram og til baka og svo í hring. Hún með fallegu kassa/tröppu munstri og perluprjóns böndum.
Stærðir: Fyrirbura, 0-3 mán, 3-6 mán, 6-9 mán og 9-12 mán
Ummál: 25 cm, 27,5 cm, 29 cm, 30,5 cm, 33 cm
Ath. Ummálið er ekki höfuðmál barns, heldur ummálið á kjusunni sjálfri, mælt frá kjálka til kjálka.
Lengd: 13 cm, 14 cm, 15,5 cm, 16,5 cm, 17,5 cm
Prjónfesta: 28 L = 10 cm
Prjónar: Hringprjónn nr. 3 og sokkaprjónar nr. 3
Tillaga að garni: Wolly light frá jord clothing, Merino frá knitting for olive eða Sunday frá sandes
Magn af garni: 50 grömm í öllum stærðum
*magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll mis fast/laust
Erfiðleikastig: 2
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Ásgerður Hlín Þrastardóttir
Netfang: knittingforaria@gmail.com
Instagram: @knittingforaria