Dögun - samfella
Dögun - samfella
Dögun samfella er einföld og falleg samfella. Fallegt munstur er í allri samfellunni og sæt pífa í hálsmálinu.
Samfellan er hönnuð með það í huga að hafa svolítinn slaka og ætti þess vegna að vera ágætlega víð.
Samfellan er prjónuð ofan frá og niður með fallegu munstri. Prjónað er fram og til baka fyrst en svo er samfellan prjónuð í hring, ermar eru prjónaðar í hring.
Það sem þarf
- 2,5mm hringprjónar 40cm og 3mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm og 3mm sokkaprjónar fyrir ermar
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
- Tölur: Veldu 4 fallegar tölur til að hafa á samfellunni
Tillaga að garni: Knitting for Olive merino (50gr = 250m)
EÐA Sunday frá Sandnes (50gr = 235m)
EÐA Woolly light frá Jord Clothing (50gr = 250m)
Stærðir og magn af garni*
Stærð | Knitting For Olive Merino | Woolly light frá Jord | Sunday frá sandnes |
0-3 mán | 100gr | 100gr | 100gr |
3-6 mán | 100gr | 100gr | 100gr |
6-9 mán | 150gr | 150gr | 150gr |
9-12 mán | 150gr | 150gr | 150gr |
12-18 mán | 150gr | 150gr | 150gr |
Ummál: 47cm (50,5cm) 53,5cm (55,5cm) 60cm
Prjónfesta: 28 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 3
*magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll mis fast/laust
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits