Skip to product information
1 of 5

Vilborgknits

Dögun - oversized barnapeysa

Dögun - oversized barnapeysa

Regular price 1.050 ISK
Regular price Sale price 1.050 ISK
Sale Sold out
Tax included. Shipping calculated at checkout.

Dögun Oversized Barnapeysa er falleg og þæginleg kósýpeysa fyrir börnin. Peysan er hönnuð með það í huga að vera oversized og ætti því að vera nokkuð víð.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður í hring. Ermar eru prjónaðar í hring. Fallegt og einfalt munstur er í allri peysunni

Það sem þarf

  - Hringprjónn nr 2.5mm (60, 80 og/eða 100 smm)

  - Hringprjónn nr 3mm (80 og/eða 100sm)

  - Sokkaprjónar nr 2,5mm og 3mm fyrir ermar

  - Nál til frágangs

  - Prjónamerki 

Stærðir: 1½ - 2 ára (2-3 ára) 3-4 ára (4-5 ára) 5-6 ára (6-7 ára) 7-8 ára (9-10 ára) 11-12 ára 

Ummál: 70cm (74cm) 76cm (80cm) 83cm (86cm) 88cm (96cm) 100cm

Lengd: 35cm (38cm) 40cm (45cm) 46cm (47cm) 48,5cm (52cm) 53cm 

Prjónfesta: 28 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 3 

Prjónar: 2,5mm hringprjónar 60cm, 80cm og/eða 100cm, 3mm hringprjónar 80cm og/eða 100cm og sokkaprjónar fyrir ermar í bæði 2,5mm og 3mm 

*Tillaga að garni: Knitting for Olive merino 150gr (200gr) 200gr (300gr) 300gr (350gr) 350gr (350gr) 400gr (50gr = 250metrar)

eða Sunday frá Sandnes 150gr (200gr) 250gr (300gr) 350gr (350gr) 400gr (400gr) 400gr (50gr = 235metrar) 

Tillaga að teygju: 0,5-0,6cm teygja í hálsmálið

 

*magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll mis fast/laust 

 

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd sendist uppskriftin á PDF-formi í tölvupósti. 

Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta.

Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits

View full details