Birting - samfella
Birting - samfella
Birting samfella er hönnuð með það í huga að hafa svolítinn slaka og ætti þess vegna að vera svolítið víð.
Samfellan er prjónuð ofan frá og niður í hring. Ermar eru prjónaðar í hring með fallegu munstri.
Það sem þarf
- 2,5mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm,
- 3mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm og sokkaprjónar fyrir ermar bæði í 2,5mm og 3mm
- Nál til frágangs
- Tölur: Veldu 4 fallegar tölur til að hafa á samfellunni
Tillaga að garni: Knitting for Olive merino (50gr = 250m)
EÐA Sunday frá Sandnes (50gr = 235m)
Stærðir og magn af garni*
Stærð | Knitting For Olive Merino | Sunday frá sandnes |
0-3 mán | 100gr | 100gr |
3-6 mán | 100gr | 100gr |
6-9 mán | 150gr | 150gr |
9-12 mán | 150gr | 150gr |
12-18 mán | 150gr | 150gr |
Ummál: 48,5cm (51,5cm) 54cm (57cm) 61,5cm
Prjónfesta: 28 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 3
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits