Birting - opin barnapeysa
Birting - opin barnapeysa
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring með fallegu munstri.
Stærðir: 0-3 mán (3-6 mán) 6-9 mán (9-12 mán) 1-2 ára (3-4 ára)
Ummál: 46cm (48cm) 52,5cm (55,5cm) 61cm (64cm)
Lengd: 25cm (27cm) 31cm (32cm) 36cm (39cm)
Prjónfesta: 28 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 3
Prjónar: 2,5mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm og sokkaprjónar nr 2,5mm fyrir ermar 3mm hringprjónar 40cm og/eða 60cm og sokkaprjónar nr 3mm fyrir ermar
Tillaga að garni: Sunday frá Sandnes 100gr (100gr) 100gr (100gr) 150gr (150gr) (50gr = 235m)
eða Knitting for Olive merino 100gr (100gr) 100gr (100gr) 150gr (150gr) (50gr = 250m)
eða Jord Woolly light 100gr (100gr) 100gr (100gr) 150gr (150gr) (50gr = 250m)
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits