Birting - krakkapeysa
Birting - krakkapeysa
Birting krakkapeysa er hönnuð með það í huga að hafa ágætlega mikinn slaka og ætti þess vegna að vera svolítið víð.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður í hring. Ermar eru prjónaðar í hring með fallegu munstri.
Það sem þarf
- 40cm og/eða 80cm og sokkaprjónar fyrir ermar í bæði 3,5mm og 4,5mm
- 3,5mm hringprjónar 40cm og/eða 80cm, 4,5mm hringprjónar
- Nál til frágangs
Tillaga að garni: Knitting for Olive heavy merino (50gr = 125m)
Stærðir og magn af garni*
Stærð | Knitting For Olive Heavy Merino |
1-1,5 árs | 200gr |
1,5-2 ára | 250gr |
2-3 ára | 250gr |
3-4 ára | 250gr |
4-5 ára | 250gr |
5-6 ára | 300gr |
6-7 ára | 300gr |
7-8 ára | 350gr |
9-10 ára | 400gr |
11-12 ára | 450gr |
13-14 ára | 500gr |
Ummál: 68cm (70cm) 72cm (73cm) 76,5cm (80cm) 84,5cm (86,5cm) 93,5cm (98cm) 100cm
Lengd: 38cm (43cm) 45cm (46cm) 47,5cm (48cm) 49cm (50cm) 55cm (58cm) 63cm
Prjónfesta: 18 lykkjur = 10cm í sléttu prjóni á prjóna nr 4,5mm
Erfiðleikastig: 2
*Uppgefið magn af garni er aðeins viðmið þar sem við prjónum öll misfast/laust.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd opnast gluggi þar sem hægt er að hala niður uppskriftinni á PDF-formi
Hönnuður: Vilborg Pála Eriksdóttir
Netfang: vilborgknits@outlook.com
Instagram: @vilborgknits